Jeiiiii!!! ég er búin í prófi ligga ligga lái

Hey ég þreif í dag
alla íbúðina hátt og lágt (pabbi ryksugaði reyndar!) og váá
þvílíkur munur... það gerist svo sjaldan að það sjáist actually
munur eftir að búið er að þrífa hérna því það er venjulega alltaf
svo ógeðslega hreint! en gamla settið er bara búið að vera að leika
sér í útlöndum og ekkert skipt sér af því þó það hafi allt verið í
drasli þessa örfáu daga sem þau voru heima.. ég var náttla í prófum
og þá síður að pæla í því! en við pabbi tókum sem sagt til og nú er
allt alveg "spikk únd span"

vá þið hljótið að vera
alveg að deyja úr spenningi yfir þessari gríðarlega skemmtilegu og
áhugaverðu færslu

Svo er bara vísó á morgun og októberfest
víhúúú

það held ég að djammið verði ærlega tekið í gegn og við
Harpa munum blasta "My humps" eins og við mögulega getum!!! það er
búinn að vera mikill spenningur í okkur í prófatörninni til að geta
loksins tjúttað við þetta annars guðdómlega lag!

Binni er að
fara til Færeyja á morgun

minns á eftir að sakna þinns