Ég undirgengst nú mjög ánægjulegt og langþráð "offline" tímabil. Það útskýrir bloggleysið.
Ég tók sem sagt mjög meðvitaða ákvörðun að njóta sumarsins og hanga sem minnst inni og þá allra síst í tölvunni. Ég geri nóg af því á veturna. Mig langaði nú samt að láta alla nær- og fjærstadda vita að af mér er allt gott að frétta. Veturinn ógurlegi er að baki og kemur vonandi aldrei aftur. Medicine prófið var meiri viðbjóður en nokkur hefði getað trúað en einhvern veginn lifði maður þetta af og skilaði sínu. Kirurgiu prófið var töluvert skárra, jaðraði nú bara meira að segja við það að vera skemmtilegt! Ég er svo að vinna í sumar sem aðstoðarlæknir á öldrunarsviði. Ég byrjaði í Fossvoginum á deild B4 (2 dögum eftir próflok) en þetta er svona deild fyrir bráðveika sjúklinga. Man oh man þar var sko erill í lagi. Kannski soldið meiri erill en ég bjóst við en líka kannski meiri en aðrir upplifa hann þar sem ég var þar fullkomlega að stíga mín fyrstu skref sem einhvers konar læknir ...og í þokkabót með "dash" af ábyrgð á öxlunum. Seinni hluta júní fluttist ég þó yfir á lungnaendurhæfingardeild á Landakoti. Þar eru allir heldur rólegri í tíðinni en samt mjög krefjandi og nóg að gera. Sérstaklega skemmtilegur sjúklingahópur. Vaktirnar líka fínar sem ég hef tekið. Búin að lenda í alls konar uppákomum og því farið að reyna vel á kunnáttu manns og færni. Ég verð nú að segja að þetta starf verður bara meira og meira heillandi eftir því sem á líður. Mjög skemmtilegt líka að vera loksins komin inn á eina deild þar sem maður getur kynnst bæði starfsfólki og sjúklingum almennilega. Ég var alveg komin með nóg af því að rotera milli deilda viku eftir viku. Auk þess eru líka Tryggvi og Pétur bekkjarfélagar í húsinu ásamt úrvalsliði unglækna og sérfræðinga. Mjög samheldinn hópur. Svo er líka full dagskrá í gangi, kennsla og fræðsla, þannig að maður lærir endalaust mikið. Auk þess höfum við vel flest tekið stórstiga framförum í "hacky-sack", en það er reglulegur viðburður í hádeginu

.
Binni og Heiðdís útskrifuðust svo frá HÍ laugardaginn 14. júní, Binni úr tölvunarfræðinni og Heiðdís úr læknadeild. Dagurinn var alveg meiriháttar. Yndislegt veður og allir svo kátir og glaðir. Binni er byrjaður að vinna hjá Landsteinum Streng (sem er hugbúnaðarfyrirtæki) og líkar bara svakalega vel. Við erum því svakalega upptekið fólk um þessar mundir og vinnum eins og brjálæðingar. Samt hef ég nú eitthvað verið að bralla þess á milli. Við kíktum upp í bústað í afmæli ömmu Rósar og gróðursettum fullt af trjám í úrhellis rigningu. Svo fór ég aðeins meira upp í bústað og í golf með familíunni

. Um síðustu helgi gæsuðum við vinkonurnar svo Bjarneyju. Þemað var að sjálfsögðu glam-rock og vorum við svo æstar í þessu öllu saman að við gátum ekki hamið okkur um að vera allar uppdressaðar (gæsin var bara svona over-the-top dressed!!). Þannig héldum við af stað í kajak róður um sýkin við Stokkseyri. Fórum svo og fengum okkur humarsúpu allar blautar og málningin skæld á andlitunum. Hahaha en yndislegt. Svo gengum við af stað inn að einhverjum laugum rétt hjá Hveragerði en gáfumst upp eftir ca. 1 km þar sem engin okkar var búin undir svona mikla göngu. Við komum okkur bara fyrir í laut og staupuðum ópal-sjúss, drukkum bjór og gæddum okkur á brownies og möffins. Mjög súrrealískt og skemmtilegt. Yndislegt veður og dásamlegt. Héldum svo aftur í bæinn þar sem skipt var um gír og farið í partý til Laufeyjar en þá var komið nýtt þema, Hawaii!! Hahaha jeiiii!! Uppblásni pálminn og páfagaukarnir vöktu mikla kátínu. Æ stelpur takk fyrir æðislegan dag.

Hlakka til að sjá ykkur í brúðkaupi Bjarneyjar og Kela þann 19. júlí.
Núna er ég að undirbúa mig undir komandi harðsperrur eftir Esjugöngu gærdagsins. Ég man nú bara ekki eftir annarri eins bongó blíðu hérna eins og var í gær. Við Binni skelltum okkur því upp á Esju en þangað hafði kallinn aldrei komið. Það þverfótaði nú varla fyrir fólki þarna, þvílík örtröð. Enda leið ekki á löngu þar til við slógumst í hóp með Helgu, Rakel og Freyju, vinkonum Heiðdísar. Hitti líka fullt af bekkjarsystrum mínum og öðru góðu fólki. Það er þó mesta furða hvað ég finn ekki neina strengi eftir þetta allt saman. Kannski er þetta lognið á undan storminum. Ligg eflaust fyrir á morgun.

Ég var líka mjög ánægð með hnéið mitt. Það stóð sig svakalega vel.

Fann að vísu að það hefði ekki höndlað mikið lengri niðurleið en vonandi verður einhver bót þar á. Er að koma mér í gang aftur í ræktinni. Hlakka til að prófa nýja salinn úti á Nesi. En það bíður betri tíma... full dagskrá fram yfir helgina. Ættarmót og "rómantísk golfferð" coming up!!
Segi það gott í bili.
Hafið það sem allra best... hættið að lesa blogg og farið út - njótið sumarblíðunnar

.